Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing) Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.
Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
|
Ættkvísl |
|
Acer |
|
|
|
Nafn |
|
campestre |
|
|
|
Höfundur |
|
L. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Hagahlynur |
|
|
|
Ætt |
|
Hlynsætt (Aceraceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Lauffellandi stór runni - lítið tré. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól, skjól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Gulgrænn. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Vor (maí). |
|
|
|
Hæð |
|
5-8 m . |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Tré allt að 25 m hátt í heimkynnum sínum og allt að 12 m í ræktun erlendis. Börkurinn er grár, ögn sprunginn. Greinar brúngráar, stundum kork-gáróttar eða dúnhærðar. Krónan hvelfd. |
|
|
|
Lýsing |
|
Brum smá, grænleit. Lauf 8 × 10 sm, 3-5 flipótt, grunnur hjartalaga, mattgræn á efra borði, dúnhærð neðan, flipar snubbóttir, heilrendir eða flipóttir. Blómskipunin hálfsveipur með 9-20 blóm. Blómin gulgræn, bikar- og krónublöð ögn hærð, eggleg hærð. Aldin allt að 3 sm, hnotir flatar, hærðar eða hárlausar. Vængur láréttir. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Evrópa, V Asía. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Frjór, meðalrakur, kalkríkur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
4 |
|
|
|
Heimildir |
|
1, 2 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sáning strax og fræin hafa náð fullum þroska eða eftir að þau hafa verið forkæld. Fræ í tvívængjuðum, hárlausum hnotum. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Stakstæð, í þyrpingar, í beð. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 2000 og önnur var gróðursett í beð 2004, hin er í sólreit 2012. Hefur verið ræktuð hérlendis en reynsla upp og ofan - aðallega fremur dapurleg. Þarf að fylgja eftir með klippingu sé ætlunin að forma í tré. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
Nokkur yrki eru í ræktun erlendis svo sem 'Pendulum', 'Poselense', 'Schwerinii', 'Pulverulentum', 'Zorgvlied'. |
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|