Jón Helgason - Úr ljóðinu Áfangar
Séð hef ég skrautleg suðræn blóm
sólvermd í hlýjum garði;
áburð og ljós og aðra virkt
enginn til þeirra sparði;
mér var þó löngum meir í hug
melgrasskúfurinn harði,
runninn upp þar sem Kaldakvísl
kemur úr Vonarskarði.
Caragana spinosa
Ættkvísl   Caragana
     
Nafn   spinosa
     
Höfundur   (L.) DC.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Þyrnikergi
     
Ætt   Ertublómaætt (Fabaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Skærgulur.
     
Blómgunartími   Snemmsumars.
     
Hæð   0,7-1,5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur runni og fremur rytjulegur, greinar langar og mjög þyrnóttar.
     
Lýsing   Runni allt að 1,5 m hár, rytjulegur í vextinum, ársprotar langir, óskiptir, mjög þyrnóttar, dúnhærð þegar þeir eru ungir. Aðallaufleggur stinnur, allt að 4,5 sm langur. Lauf með 4-8 smálauf, axlablöð 0,7 sm, flókahærð, lensulaga. Smálauf allt að 2 sm, með langan legg, bandlaga-öfuglensulaga, næstum hárlaus. Blómin 2 sm, stök, skærgul, stundum dálítið brúnleit. Bikar pípulaga, tennur stuttar, þríhyrndar. Aldin 2 sm, hárlaus.
     
Heimkynni   Síbería.
     
Jarðvegur   Grýttur, leirkenndur, sendinn jarðvegur, þurr til meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   2
     
Heimildir   1, http://en.hortipedia.com
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, sáning.
     
Notkun/nytjar   Sem stakstæð planta, í raðir og í runnabeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem var sáð til 1981 og gróðursett í beð 1988. Þrífst vel, kelur lítið sem ekkert.
     
Yrki og undirteg.   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Þolir allt að – 40°C frost.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is