Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Cotoneaster bullatus
Ættkvísl   Cotoneaster
     
Nafn   bullatus
     
Höfundur   Bois.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Ígulmispill
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sumargrænn runni.
     
Kjörlendi   Full sól sunnan undir, vestan undir eða austan undir vegg,áveðurs eða í skjóli.
     
Blómlitur   Ljósbleikur, hvítur með rauðu.
     
Blómgunartími   Vor-snemmsumars.
     
Hæð   2-3 m (4)
     
Vaxtarhraði  
     
 
Ígulmispill
Vaxtarlag   Stór, sumargrænn runni, verður 2,5-4 m hár og 2,5-4 m breiður, þarf allt að 10-20 ár að ná fullri stærð.
     
Lýsing   Lauf allt að 7 sm löng, egglaga til aflöng, oddbaugótt, langydd, þunn, með djúpar æðar, dökkgræn og gróf-blöðrótt ofan, ullhærð neðan, verða rauð og appelsínugul á haustin. Blómin lítil, fölbleik-hvít með rauðu. 2-30 knippi, knippin allt að 5 sm í þvermál, krónublöð upprétt, fræflar 15-20. Aldin tiltölulega stór, allt að 1 sm í þvermál.eggvala til hálfhnöttótt, rifsberjarauð, kjarnar/fræ 4-5.&
     
Heimkynni   V Kína
     
Jarðvegur   Léttur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar   Bjöllur geta lagst á runnann sem og ullarlýs. a.m.k. erlendis.
     
Harka   5
     
Heimildir   1, http://apps.rhs.org.uk
     
Fjölgun   Haustsáning, sumargræðlingar. Fjölgað með fræi sem sáð er jafnskjótt og þau eru þroskuð á haustin, í ílát í sólreit eða með sumargræðlingum snemma sumars.
     
Notkun   Í beð, í kanta, stakstæð, í þyrpingr, í blönduð beð, í raðir. ----- Snyrt og klippt til fyrir í veggi.
     
Nytjar   REYNSLA: Ekki í Lystigarðinum 2012. --
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Ígulmispill
Ígulmispill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is