Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Cotoneaster apiculatus
Ættkvísl   Cotoneaster
     
Nafn   apiculatus
     
Höfundur   Rehd. & Wils.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hvassmispill
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sumargrænn runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Rauður með hvítu.
     
Blómgunartími   Sumar.
     
Hæð   1-2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Hvassmispill
Vaxtarlag   Sumargrænn runni, allt að 2 m hár, uppréttur og oft með skástæðar eða hangandi greinar. Ungar greinar ekki vörtóttar, en dúnhærðar.
     
Lýsing   Lauf allt að 1,3 sm, næstum kringlótt, þunn, samandregin í stuttan odd efst. glansandi græn, hárlaus eða með strjála dúnhæringu á neðra borði. Blómin rauð með hvítu, stök, sjaldan tvö saman, fræflar 10-13. Aldin allt að 12 mm breið, hnöttótt, rauð, smáhnotir/fræ 2-4.
     
Heimkynni   Kína
     
Jarðvegur   Léttur, meðalfrjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, haustsáning.
     
Notkun   Stakstæður runni, í þyrpingar, í blönduð beð.
     
Nytjar   REYNSLA: Í Lystigarðinum var til ein planta, reyndist vel í byrjun en arð skammlíf. Aftur hefur verið sáð til tegundarinnar 2010, hefur ekki spírað 2012.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Hvassmispill
Hvassmispill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is