Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Cotoneaster microphyllus v. glacialis
Ættkvísl   Cotoneaster
     
Nafn   microphyllus
     
Höfundur   Wallich. ex Lindl.
     
Ssp./var   v. glacialis
     
Höfundur undirteg.   Hook. f.
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Dvergmispill
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti   Cotoneaster congestus Baker
     
Lífsform   Sígrænn eða hálfsígrænn runni
     
Kjörlendi   Sól, skjól
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Snemmsumars
     
Hæð   0,4-0,5 m
     
Vaxtarhraði   Fremur hægvaxta.
     
 
Vaxtarlag   Sígrænn hálfrunni, allt að 1 m hár. Ungar greinar ullhærðir.
     
Lýsing   Laufleggir 1-2 mm, laufblaðkan oftast oddbaugótt, 6-12 × 4-7 mm, hárlaus bæði ofan og neðan, eða næstum hárlaus neðan, verða hárlaus. Blómbotn og bikarblöð ögn dúnhærð á ytra borði. Krónublöð bleikleit.
     
Heimkynni   Himalaja, Kína (SA Xizang, NV Yunnan), Bhutan, Indland, Kashmír, Myanmar, Nepal, Sikkim í 3900-4200 m h. y. s.)
     
Jarðvegur   Léttur, frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Haustsáning, sumargræðlingar, rótskeytlingar.
     
Notkun/nytjar   Í ker, í steinhæðir, í brekkur, sem þekjurunni.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 2006, er í sólreit 2012. Lítt reynd enn sem komið er, en er í uppeldi í garðinum. Ætti að vera þokkalega harðgerð.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is