Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Rosa 'Bonica'
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Bonica'
     
Höf.   (Meilland 1985) Frakkland.
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Rosa Bonica '82, ’Meidomonac’, Demon, Bonica Meidiland
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól og skjól.
     
Blómlitur   Ljósbleikur.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   40-60 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Runnarós - skriðrós. Þessi snotra rós er lágvaxin, 40-60 sm, sem þekur jörðina, en getur orðið stór (120 til 180 sm há og álíka breið) eftir því hvar hún er ræktuð.
     
Lýsing   Kynbætt og rækta upp af Meilland í Frakklandi. Foreldrar: (Rosa sempervirens × 'Mlle. Marthe Carron') × 'Picasso'. Stór og mikil 20. aldar runnarós, útbreidd í vextinum. Blómstrar næstum stöðugt. Blómin eru nokkur saman í klösum á glæsilegum bogsveigðum greinum, laxbleik, fyllt með léttan og ferskan eplailm sumir segja hana ilmlausa. Hálfútsprungin blóm minna á ‘kálhaus’ sem fljótlega breytist þegar blómið opnast alveg. Nýpur eru hnöttóttar, stórar, appelsínugular. Þyrnar eru sterklegir.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór, vel framræstur, hæfilega rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z 4
     
Heimildir   http://www.hesleberg.no, http://www.horticlik.com/p/rosa_winnipeg_parks_shrub_-_parkland1.hbml, http://www.rose-roses.com/rosepages, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, davesgarden.com/guides/pf/go/62429/#b
     
Fjölgun   Ágræðsla.
     
Notkun/nytjar   Sólríkur vaxtarstaður, þolir ekki skugga. Fremur harðgerð. Þarf litla umhirðu. Mælt er með 3 plöntum á m². Þarf góðan, næringarríkan jarðveg. Notuð í beð, nokkrar saman í þyrpingu, í limgerði og til afskurðar.
     
Reynsla   Rosa ‘Bonica’ kom í Lystigarðinn 1997 og plantað í beð 1997, flutt í annað beð 2003, kelur mikið, blómstrar samt oftast síðsumars. Annað eintak var keypt 2007, sem tekin er í kalt gróðurhús yfir veturinn, blómstrar.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Rosa ‘Bonica’ hefur fengið mörg verðlaun svo sem: Anerkannte Deutche Rose 1983, Belfast Certificate of Merit 1983, All America Rose Selection 1987, Royal Horticultural Society Award of Garden Merit 1993 og er í uppáhaldi hjá mörgum landslagsarkitektum.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is