Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Aster farreri
Ættkvísl   Aster
     
Nafn   farreri
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Austrastjarna
     
Ætt   Asteraceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   fjólublár/gullgulur hvirfill
     
Blómgunartími   síðsumars
     
Hæð   0,4-0,6m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Austrastjarna
Vaxtarlag   Þýfður fjölæringur, stuttar neðanjarðarrenglur
     
Lýsing   grunnblöðin að 12 sm að lengd, lensulaga, stilkuð, loðin, heilrennd, randhærð, lauf ofan til á stöglum minni, stilklaus, hrjúf, blóm um 3 sm í Þvermál, stök, geislablóm mjó, fjólublá, hvirfillinn gullgulur til appelsínugulur
     
Heimkynni   Tíbet
     
Jarðvegur   léttur, framræstur, frjór, lífrænn
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   skipting að vori, sáning
     
Notkun/nytjar   fjölær beð
     
Reynsla   Reyndist vel í Lystigarðinum en dó eftir 3 ár - mjög falleg - Þarf að reyna betur t.d. í steinhæð
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Austrastjarna
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is