Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Ribes laxiflorum
Ættkvísl   Ribes
     
Nafn   laxiflorum
     
Höfundur   Pursh.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hélurifs
     
Ætt  
     
Samheiti  
     
Lífsform   runni
     
Kjörlendi   sól, hálfskuggi
     
Blómlitur   rauðleit
     
Blómgunartími   maí
     
Hæð   -0.5m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Útbreitt vaxtarlag, langir jarðlægir sprotar sem skjóta rótum, myndar fljótt góða breiðu
     
Lýsing   Blöðin 5 sepótt, separ egglaga, gróftennt, hárlaus á efra borði en dúnhærð á því neðra. Blóm í 6-8cm klasalíkri skipan, rauð, kirtildúnhærð, bládöggvuð ber, æt
     
Heimkynni   N Ameríka (Alaska - N Kalifornía)
     
Jarðvegur   léttur, frjór, framræstur, rakaheldinn
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   sáning, sumar og vetrargræðlingar, sveiggræðsla
     
Notkun   steinhæðir, kanta, beðjarðra (trjábeð), undirgróður
     
Nytjar   Harðger og auðræktuð tegund sem á skilið meiri útbreiðslu
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is