Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Ribes sanguineum
Ættkvísl   Ribes
     
Nafn   sanguineum
     
Höfundur   Pursh.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Blóðrifs
     
Ætt   Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi, strandplanta.
     
Blómlitur   Rauður eða rósrauður.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   1-2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Blóðrifs
Vaxtarlag   Lauffellandi, uppréttur, fremur þéttur runni, allt að 2 m hár, greinar útstæðar, snúnar, dúnhærðar aðeins í fyrstu, þyrnótta, kirtilhærða, ilmandi, rauðbrúnar.
     
Lýsing   Lauf 5-10 sm í þvermál, kringlótt, hjartalaga við grunninn, 3-5 flipótt, dökkgræn og ögn dúnhærð á efra borði, hvítlóhærð á neðra borði, laufleggir kirtil-lóhærðir. Blómskipunin 8 sm löng, upprétt eða hangandi, klasar þéttir, margblóma, blómgreinar kirtildúnhærðar. Blóm pípulaga, rauð eða rósrauð, bikarflipar lengri en pípan, krónublöð stutt, hálf lengd flipanna, bogadregin í endann, grunnur mjór, hvít eða rósbleik. Ber 1 sm í þvermál, dálítið kirtilþornhærð, blásvört, hvítmélug.
     
Heimkynni   V Bandaríkin til Kaliforníu.
     
Jarðvegur   Frjór, framræstur, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Sáning, síðsumar- og vetrargræðlingar, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í suðurkanta á trjábeðum, sunnan undir húsvegg.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem kom frá gróðrastöðinni Mörk 1984. Hún hefur kalið meira eða minna gegnum árin. Blómstrar mismikið eftir árferði. Mikið af blómum 2011. Blómstrar ágætlega sum ár.
     
Yrki og undirteg.   Nokkur yrki í ræktun erlendis sem ekki hafa verið reynd hér. T.d. 'Albescens', 'Plenum', 'Red Pimpernel', 'Tydemans White' og fleiri.
     
Útbreiðsla  
     
Blóðrifs
Blóðrifs
Blóðrifs
Blóðrifs
Blóðrifs
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is