Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Adonis brevistyla
Ættkvísl   Adonis
     
Nafn   brevistyla
     
Höfundur   Franch.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Ljósagoði
     
Ætt  
     
Samheiti   Adonis davidii
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   hvítur
     
Blómgunartími   snemmsumars
     
Hæð   0.2-0.4m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Ljósagoði
Vaxtarlag   Uppréttir blómstönglar, jarðstönglar u.þ.b. 8 mm í þvermál.
     
Lýsing   Blómstilkar 20-40 sm háir, greindir frá grunni, hárlausir en neðst á stönglum er himnukennt hreistur. Leggur neðstu stilklaufa allt að 7 sm en ofar eru blöðin leggstutt eða legglaus. Blaðkan er fimmhyrnd til þríhyrnd-egglaga, 3.5-9 x 3.5-10 sm, þrískipt, hárlaus, smálauf tvífjaðurskipt, endableðill mjóegglaga til lensulaga, hvasstenntur. Blómgast í júlí. Blómin 1.8-2.8 sm í þvermál. Bikarblöð 5-7, oddbaugótt, 5-8 mm löng, hárlaus, sjaldan kögruð. Krónublöð 7-14 hvít, stundum með purpuralitri slikju, öfugegglaga-aflöng 1-1.4 sm, bogadregin eða +/- hvassydd í enda. Frævlar jafnlangir bikarblöðum. Eggleg lítillega smádúnhærð. Stílar mjög stuttir, fræni hárlaus. Aldinið er hnot, öfugegglaga, 3-4 mm, ögn dúnhærð.
     
Heimkynni   Kína
     
Jarðvegur   Vex best í frjóum, vel framræstum en þó rakaheldum jarðvegi
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir  
     
Fjölgun   skipting, sáning
     
Notkun   fjölær beð, steinhæðir, kanta
     
Nytjar   Hefur reynst vel í garðinum (B6-A. Ræktuð í LA frá 1994 og fær mína bestu einkunn - mjög fínleg og flott steinhæðarplanta sem þó þolir að vera í jaðri á fjölæru beði svo fremi að ekki safnist vatn að henni að vetri
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Ljósagoði
Ljósagoði
Ljósagoði
Ljósagoði
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is