Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Celmisia prorepens
Ættkvísl   Celmisia
     
Nafn   prorepens
     
Höfundur   Petrie
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rengluselma
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hreinhvítur.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   20-25 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Rengluselma
Vaxtarlag   Fjölæringur með stöngla sem eru þaktir dauðu laufi, skriðular greinar, slá rótum á liðunum og mynda breiður sem verða allt að 1 m í þvermál.
     
Lýsing   Lauf allt að 8 x 2,5 sm í þéttum toppstæðum blaðhvirfingum, oddbaugótt, leðurkennd, mjög hrukkótt, með laufleggur. Karfan um 4 sm í þvermál, á sterklegum, köntuðum, límkenndum stöngli allt að 20 sm löngum, reifablöð allt að 12 mm, bandlaga, límkennd, með dúsk í toppinn, geislablöð allt að 20 mm, með mjóa, langa tungu. Aldin allt að 3 mm, sívöl.
     
Heimkynni   Nýja Sjáland.
     
Jarðvegur   Léttur, vel framræstur, fremur þurr.
     
Sjúkdómar   Engir.
     
Harka   7
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Skipting, sáning, græðlingar að vori.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beð.
     
Reynsla   Harðgerð og auðræktuð í Lystigarðinum þar sem hún hefur verið lengi í ræktun og þrifist vel, þrífst best í léttum, vel framræstum, frjóum, meðalrökum jarðvegi og hentar því vel í steinhæð eða jaðar á fjölæringabeði. Þolir illa vatnsaga að vetri. Kröftug og flott garðplanta. Hefur vaxið með ættingjum sínum af körfublómaætt án áfalla í garðinum síðastliðin 11 ár (2004). Vex til fjalla í graslendi í heimkynnum sínum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Rengluselma
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is