Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Cremanthodium delavayi *
Ættkvísl   Cremanthodium
     
Nafn   delavayi *
     
Höfundur   (Franch.) Deels ex A. Lév.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hélulotkarfa
     
Ætt   Asteraceae
     
Samheiti  
     
Lífsform  
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   gul, purpuragrænn kollur
     
Blómgunartími   júlí
     
Hæð   0.5-0,9m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Hélulotkarfa
Vaxtarlag  
     
Lýsing  
     
Heimkynni   NA Búrma, Yunnan
     
Jarðvegur   djúpur, frjór
     
Sjúkdómar   engir
     
Harka   6
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   skipting, sáning
     
Notkun   beð
     
Nytjar   Þokkalega harðger fjallaplanta, kemur seint upp á vorin
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Hélulotkarfa
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is