Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Achillea clavennae
Ættkvísl   Achillea
     
Nafn   clavennae
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Silfurhumall
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Ágúst.
     
Hæð   - 40 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, silki-lóhærð. Stönglar allt að 40 sm háir, ógreindir, uppréttir eða uppsveigðir. Laufin fjaðurskipt, flest heilrend, með fáa flipa, grunnlauf allt að 8 sm, með legg, stöngullauf 2 x 1 sm, legglaus.
     
Lýsing   Körfur 10-18 mm í þvermál, 6-25 í hálfsveip, blómskipunarleggur 5-20 mm, reifar 4-8 mm breiðar, nærreifar 3-5 mm, egglaga, með breiða, brúna jaðra, geislablóm 4-6 mm, egglaga, hvít.
     
Heimkynni   A Alpafjöll, V Balkanskagi.
     
Jarðvegur   Sendinn, framræstur, magur, fremur þurr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning (plöntur upp af fræi eru breytilegar).
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beð.
     
Reynsla   Harðgerð-meðalharðgerð planta, lítt reynd hérlendis enn sem komið er. Ekki í Lystigarðinum 2015.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is