Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Salix polaris
Ættkvísl   Salix
     
Nafn   polaris
     
Höfundur   Wahlenb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Heimskautavíðir
     
Ætt   Víðiætt (Salicaceae).
     
Samheiti   Salix pseudopolaris.
     
Lífsform   Lauffellandi, skriðull runni .
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Purpura.
     
Blómgunartími   Júní-ágúst byrjun.
     
Hæð   3-5(-9) sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, aðeins um 3-5 sm hár. Stönglarnir skriðulir eða niðri í jarðveginum. Ársprotar stuttir, grannir.
     
Lýsing   Lauf 1,5-1,2 sm, oddbaugótt-egglaga, bugskert, gljáandi, dökkgræn ofan, matt ljósgræn neðan, heilrend. Engin axlablöð. Reklar 15-blóma, eggvala, endastæðir á hliðarsprotum, reklahlífar purpurasvartar, hærðar. Frjóþræðir karlblóma purpura, stílar kvenblóma langir, eggleg dúnhærð. Kvenreklar 2-4 sm langir, leggur egglegs 0,2-0,7 mm langur, hunangskirtlar 2-5 sinnum lengd leggs egglegsins. Blómin einkynja.
     
Heimkynni   Heimskautahluti Evrópu.
     
Jarðvegur   Malarborinn, magur, blautur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   2
     
Heimildir   = 1, en.wikipedia.org/wiki/Salix-polaris, eol.org/pages/586687/overview, www.flora.dempstercountry.org/=.Site.Folder/Species.Program/Species.php?species-id=Salix.polar
     
Fjölgun   Sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beð fyrir heimskautaplöntur.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is