Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Betula pendula 'Fastigiata'
Ættkvísl   Betula
     
Nafn   pendula
     
Höfundur   Roth.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Fastigiata'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Súlubjörk (vörtubirki)
     
Ætt   Bjarkarætt (Betulaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Tré
     
Kjörlendi   Sól og skjól
     
Blómlitur   Grænleitur-kakóbrúnn
     
Blómgunartími   Maí-júní
     
Hæð   8-10 m
     
Vaxtarhraði   Meðal
     
 
Súlubjörk (vörtubirki)
Vaxtarlag   Meðalstórt, upprétt tré sem getur orðið 8-10(-11) m hátt og 2-4 m breitt. Óvenjulegt í vextinum, súlulaga-spólulaga, hneigist til að verða mjóegglaga með aldrinum. greinarnar vefjast um hver aðra og vaxa innávið og mynda með því uppréttan súlulaga form. Ytri greinarnar eru dálítið innsveigðar og samvafðar. Fallegur hvítur bolur, börkur flagnar í flögur (næfra), þunnar og hvítur sem pappír, verður svartur og sprunginn á neðri hluta bolsins. Tréð er einnig glæsilegt lauflaust að vetrinum.
     
Lýsing   Laufin eins og á venjulegu vörtubirki. Þau eru skærgræn, þríhyrnd og með tvísagtennta jaðra, smjörgul að haustinu. Blómin smá í reklum. Karl- og kvenblóm eru sitt í hvoru lagi á sömu plöntunni. (monoecious). Aldin eru smáhnotir með væng í hangandi reklum sem detta af á haustin. Sé þörf á að snyrta tréð ætti að gera það síðsumars eða snemma hausts, en skerðing síðla vetrar eða snemma vors veldur því að trénu 'blæðir' allt of mikið.
     
Heimkynni   Yrki
     
Jarðvegur   Rakur jarðvegur, meðalfrjór. Þolir bæði blautan og þurran jarðveg og getur aðlagast breytilegu sýrustigi
     
Sjúkdómar  
     
Harka   2
     
Heimildir   = 1, http://www.flemings.com.au, http://www.specialitytrees.com.au
     
Fjölgun   Fjölgað með ágræðslu á stofna ilmbjarkar.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, sem stakstæð tré, í blönduð beð.
     
Reynsla   Er ekki í Lystigarðinum 2013. Ætti að þrífast þolanlega á allra bestu stöðum í sól og góðu skjóli, ekki vitað hvort það hefur verið reynt í görðum hérlendis.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Súlubjörk (vörtubirki)
Súlubjörk (vörtubirki)
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is