Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Ranunculus lanuginosus
Ættkvísl   Ranunculus
     
Nafn   lanuginosus
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Loðsóley
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Appelsínugulur.
     
Blómgunartími   Vor-sumar.
     
Hæð   30-50 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Loðsóley
Vaxtarlag   Dúnhærð fjölær jurt, stönglar hærðir, 30-50 sm.
     
Lýsing   Grunnlaufin djúp 3-5 flipótt, flipar egglaga, óreglulega tenntir, stöngullaufin minni en grunnlaufin. Blómin mörg, djúp appelsínugul, allt að 4 sm í þvermál, bikarblöð útstæð. Blómbotn hárlaus, fræhnotir hliðflatar, 4-5 mm, trjónan breið, baksveigð.
     
Heimkynni   M & S Evrópa, Kákasus.
     
Jarðvegur   Frjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beð með fjölærum plöntum.
     
Reynsla   Hefur reynst harðgerð hérlendis en á það til að sá sér mikið.
     
Yrki og undirteg.   Ranunculus lanuginosus 'Pleniflorus' með mjög blettótt blöð, fyllt appelsínugul blóm.
     
Útbreiðsla  
     
Loðsóley
Loðsóley
Loðsóley
Loðsóley
Loðsóley
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is