Snorri Hjartarson - Lyng

Gott er að leggjast í lyngið,
sjá lauf glóa, finna kvik
fjaðurmjúk atlot þess, fagna
í fegurð jarðar meðan rauð
og lág sólin lækkar
og lyngbreiðan er ilmgrænt haf
sem ber þig að hljóðri húmströnd
og hylur þig gleymsku.

Campanula bellidifolia
Ættkvísl   Campanula
     
Nafn   bellidifolia
     
Höfundur   Adams
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Þúfuklukka
     
Ætt   Campanulaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Djúpfjólublár/hvítt auga
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst
     
Hæð   0.1-0.2m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Þúfuklukka
Vaxtarlag   Dvergvaxinn, þýfður fjölæringur, hárlaus og myndar blaðhvirfingaþúfur með mörgum hreistruðum blómstilkum um 10 sm háum.
     
Lýsing   Stofnstæðu laufin eru egglaga til breiðoddbaugótt, bogtennt, blaðstilkar langir. Stöngullaufin eru minni, öfuglensulaga, mjókka að grunni og eru næstum stilklaus. Blómin mörg, upprétt, 3-4 sm í þvermál. Bikarflipar snubbóttir, aukabikarflipar mjóegglaga. Króna bjöllulaga, djúpfjólublá til blá.
     
Heimkynni   M Kákasus
     
Jarðvegur   Þurr, grýttur, fremur ófrjór
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1,2
     
Fjölgun   Skipting að vori eða hausti, sáning
     
Notkun/nytjar   Steinhæðir, kanta
     
Reynsla   Hefur reynst vel í garðinum. Þrífst vel. Í J5 frá 1995. Góð steinhæðaplanta.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Þúfuklukka
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is