Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Sedum oreganum
Ættkvísl   Sedum
     
Nafn   oreganum
     
Höfundur   Nutt.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Oddahnoðri
     
Ætt   Hnoðraætt (Crassulaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Oddahnoðri
Vaxtarlag   Skriðul, hárlaus jurt, allt að 15 sm há.
     
Lýsing   Stönglar skriðulir, með marga uppsveigðar greinar. Lauf 10-20 mm, stakstæð eða gagnstæð, spaðalaga, glansandi, oft rauðmenguð. Blómskipunin flatur, þéttur skúfur, blómin legglaus, bollalaga. Bikarblöð 5, 4 mm, egg-lensulaga, ydd. Krónublöð 5, 10-12 mm, lensulaga, samvaxin við grunninn, gul. Fræhýði 6-8 mm, næstum upprétt.
     
Heimkynni   NV N-Ameríka.
     
Jarðvegur   Léttur, þurr, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í kanta, í beð, í brekkur, í ker.
     
Reynsla   Hefur reynst vel bæði norðan og sunnanlands. Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Oddahnoðri
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is