Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Dodecatheon clevelandii
Ættkvísl   Dodecatheon
     
Nafn   clevelandii
     
Höfundur   Greene
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Ásagoðalykill
     
Ætt   Maríulykilsætt (Primulaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi  
     
Blómlitur   Rauðrófupurpura til hvítur.
     
Blómgunartími   Snemmsumars.
     
Hæð   20-35 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Ásagoðalykill
Vaxtarlag   Breytilegar plöntur, kirtilhærðar, án æxlikorna.
     
Lýsing   Lauf öfugegglaga til spaðalaga, mjókka smám saman að grunni, 2-30 x 1-3 sm, jaðrar stundum með smáar framstæðar tennur eða með tungur. Blómstönglar 11-35 sm með um 20 blóm. Krónan með 5 flipa, allt að 2 sm, rauðrófupurpurea til hvít. Frjóþræðir gulir til dökkpurpura, samvaxnir. Frjóhnappatengsl hrukkótt. Fræni ekki stækkuð. Fræhýðistennur sljóyddar.
     
Heimkynni   S USA, Mexíkó
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, fremur rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1,2
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð, í breiður.
     
Reynsla   Í N1 frá 1991 og hefur þrifist með ágætum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Ásagoðalykill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is