Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Dodecatheon poeticum
Ættkvísl   Dodecatheon
     
Nafn   poeticum
     
Höfundur   Henderson
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Brekkugoðalykill
     
Ætt   Maríulykilsætt (Primulaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Purpura-ljósgráfjólublár.
     
Blómgunartími   Síðla vors til snemmsumars.
     
Hæð   10-20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Brekkugoðalykill
Vaxtarlag   Plantan er kirtilhærð, án æxlikorna.
     
Lýsing   Lauf öfugegglaga, mjókka smám saman í legginn, 6-11 x 1,2 sm, heilrend. Blómstöngull 13-20 sm hár með 2-5 blóm. Króna með 5 flipa, allt að 1,5 sm, flipar rauðrófupurpura til ljósgráfjólubláir. Frjóþræðir samvaxnir í mjóa pípu, brúnrauðir til purpura, tenglin slétt eða ögn hrukkótt. Fræni ekki stækkuð. Fræhýðistennur hvassyddar, fræhýðisveggir sterkir.
     
Heimkynni   NV Bandaríkin.
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1,2
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í kanta, í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Í N1 frá 1995 - hefur þrifist vel í garðinum það sem af er.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Brekkugoðalykill
Brekkugoðalykill
Brekkugoðalykill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is