Úr ljóðinu Barmahlíð eftir Jón Thoroddsen
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Saxifraga oregana
Ættkvísl   Saxifraga
     
Nafn   oregana
     
Höfundur   Howell.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Oregonsteinbrjótur
     
Ætt   Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur-grænhvítur.
     
Blómgunartími   Sumar.
     
Hæð   25-50 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Ætti að greina sem S. pensylvanica skv. EGF Löglegt nafn skv. USDA Mjög lík S. pensylvanica og virðist ekki frábrugðin í neinu nema litningafjölda og landfræðilegri útbreiðslu skv. European Garden Flora.
     
Lýsing   Breytileg tegund, lík S. pensylvanica. Lauf 7-25 sm, blaðstilkur +/- lítt áberandi, bandlaga til öfuglensulaga, mjókka að grunni, heil eða hvasstennt. Blómstönglar 25-50 sm (-125 smí heimk.), þétt blómskipun. Bikarblöð aftursveigð, yfirleitt minni en krónublöð, egglaga til þríhyrnd. Krónublöð 2-4 mm, bandlaga til oddbaugótt.
     
Heimkynni   N Ameríka (Klamath Ranges, High Cascade Range, Sierra Nevada, Modoc Plateau).
     
Jarðvegur   Rakur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   2, http://ucjeps.berkeley.edu/cgi-bin/get_JM_treatment.pl?7088,7147,7160
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð, sem undirgróður.
     
Reynsla   Í N1-D06 frá 1957 og þrífst vel. Vex í raklendi í heimkynnum sínum í 150 - 2500 m hæð.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is