Sigfús Daðason - Vængjasláttur Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.
Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!
Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.
Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.
Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.
|
Ættkvísl |
|
Gentiana |
|
|
|
Nafn |
|
dahurica |
|
|
|
Höfundur |
|
Fischer |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Tígulvöndur |
|
|
|
Ætt |
|
Maríuvandarætt (Gentianaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól - hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Blápurpura. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Ágúst-september. |
|
|
|
Hæð |
|
15-25 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Fjölæringur, allt að 25 sm hár. Stönglar greindir, uppréttir eða uppsveigðir. |
|
|
|
Lýsing |
|
Grunnlauf bandlensulaga eða lensulaga-oddbaugótt, 5-15 sm x 8-14 mm, jaðrar með örsmáar tennur. Stöngullauf band-lensulaga til lensulaga, í 2-3 pörum, styttri og langyddari en grunnlaufin.
Flest blóm með legg, í enda- eða axlaskúfum. Bikarpípa venjulega ekki klofin niður á einni hliðinni, 7-10 mm. Bikarflipar mjókka ekki niður að grunni, 3-8 mm, bandlaga, misstórir. Króna 3-4,5 sm, blápurpura, bjöllu- til trektlaga. Ginleppar heilrendir eða með smátennur, ekki sýldir. Aldinhýði legglaus.
|
|
|
|
Heimkynni |
|
N Kína, A Síbería. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Framræstur, frjór, rakaheldinn. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
4 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1,2 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sáning, skipting. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í fjölæringabeð, í steinhæðir. |
|
|
|
Reynsla |
|
Stutt reynsla en ágæt það sem af er. Í E4 frá 2002. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
'Alba' er með hvít blóm. |
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|