Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Gentiana yakushimensis
Ættkvísl   Gentiana
     
Nafn   yakushimensis
     
Höfundur   Mak.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Stakvöndur
     
Ætt   Maríuvandarætt (Gentianaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, skjól.
     
Blómlitur   Blár.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   10-20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölæringur, 10-15 sm hár. Stönglar uppréttir, ógreindir, hárlausir. Blaðhvirfingin lítt þroskuð. Laufblaðkan þríhyrnd, 3-7 x 1-1,5 mm, himnukennd, jaðar lítið eitt stinnhærður, blaðkan hvassydd, miðtaugin áberandi. Stöngullauf í 3-4 blaða krönsum, miðlaufin stærri en neðstu og efstu laufin, efstu laufin lykja um bikarinn, laufblaðkan bandlensulaga, 1-1,5 sm x 1,5-3 mm, neðstu 2-3 mm grunnsins samvaxnir, jaðar sléttur og ögn niðurorpinn, blaðkan snubbótt, miðtaugin áberandi.
     
Lýsing   Krónan blá, pípu-bjöllulaga, 2,5-3,2 mm, flipar egglaga, 2,5-3 mm, jaðarinn trosnaður, snubbótt. Ginleppar mjóþríhyrndir, jafn langir og fliparnir, jaðar trosnaður, ginlepparnir snubbóttir. Fræflar festir við grunn krónupípunnar innanverðan, frjóþræðir 8-10 mm, frjóhnappar oddvala, 1,5-2 mm. Eggleg mjó-öfugegglaga, um 1 sm, eggbúsberi um 5 mm. Stíll um 4 mm, frænisflipar mjó aflangir. Aldinhýði oddvala, leggur stuttur. Fræin spólulaga.
     
Heimkynni   Japan (Yakushima).
     
Jarðvegur   Framræstur, frjór, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   = 1,2, Flora of China, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=2&taxon_id=200018136
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í fjölæringabeð. Vex í graslendi í heimkynnum sínum: Japan (Taiwan).
     
Reynsla   Lítt reynd enn sem komið er. Í E4-A frá 2001.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is