Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Ættkvísl |
|
Gentiana |
|
|
|
Nafn |
|
pumila |
|
|
|
Höfundur |
|
Jacq. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Smávöndur |
|
|
|
Ætt |
|
Maríuvandarætt (Gentianaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól - hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Djúpblár. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Vorblómstrandi. |
|
|
|
Hæð |
|
7,5 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Dvergvaxinn, þýfður fjölæringur. Stönglar allt að 7,5 sm.
Lík stuttblaðavendi (G. brachyphylla) en blaðhvirfingalauf band-lensulaga, ydd, jaðrar með vörtutennur. |
|
|
|
Lýsing |
|
Grunnlauf allt að 1,5 sm, band-lensulaga, hvassydd, öll næstum jafnstór en stærst við grunninn, stöngullauf 0,7 sm, í pörum, svipuð.
Blóm endastæð, stök, bikar 0,8-1,5 sm, pípu-bjöllulaga, kantaður, bikarflipar 0,6-0,7 sm, band-lensulaga, hvassyddir, útbreiddir. Krónan 15-20 mm í þvermál, disklaga, djúpblá, flipar egglensulaga, hvassyddir, framjaðraðir. Ginleppar sýldir, miklu styttri en fliparnir. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Evrópa. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Framræstur, meðalrakur, rakaheldinn, kalkrikur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
6 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1,2 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sáning, græðlingar að vori eða hausti. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í steinhæðir, í kanta, í ker. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í E4 frá 1999. Vex í graslendi í sínum náttúrulegu heimkynnum í 1600-2800 m hæð. Þrífst best í kalkríkum jarðvegi sem er meðalrakur að sumri en þurrari að vetri. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|