Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Dianthus brevicaulis
Ættkvísl   Dianthus
     
Nafn   brevicaulis
     
Höfundur   Fenzl.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Lágdrottning
     
Ætt   Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Djúpbleikur.
     
Blómgunartími   Júlí-september.
     
Hæð   12 sm.
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölæringur, hárlaus eða bláleitur, sem myndar þúfur, allt að 12 sm hár.
     
Lýsing   Lauf 6-20 x 0,5-1,5 mm, bandlaga, með mjög smáar tennur. Blómin stök á stuttum stöngli, sem oft er aðeins með tvö stöngllauf. Utanbikarflipar 4-6, egglaga, hvassydd allt að ½ lengd bikarsins. Krónutungan 4-7 mm, meira eða minna skeggjuð, djúpbleik, gul neðan.
     
Heimkynni   Grikkland (fjöll).
     
Jarðvegur   Léttur, sendinn, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   9
     
Heimildir   = 1, 2
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í ker, í kanta.
     
Reynsla   Lítt reynd enn sem komið er.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is