Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Dianthus zonatus
Ættkvísl   Dianthus
     
Nafn   zonatus
     
Höfundur   Fenzl.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hringadrottning
     
Ætt   Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Djúpbleikur, gulleitur á neðra borði krónutungunnar.
     
Blómgunartími   Júlí-september.
     
Hæð   20-30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Hringadrottning
Vaxtarlag   Þýfð fjölær jurt, allt að 30 sm há.
     
Lýsing   Lauf allt að 8 sm, bandlaga. Blóm stök, bikar um 2 sm, langar, odddregnar tennur. Utanbikarflipar 4-8, lang-odddregnir, meira en ½ lengd bikarsins. Krónutungan um 1,2 sm, djúpbleik, gulleit neðan.
     
Heimkynni   Tyrkland, V- Sýrland (fjöll).
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, sendinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   = 1, 2
     
Fjölgun   Sáning að vori, græðlingar að hausti, (skipting að vori).
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í ker, í kassa, í kanta, í hleðslur.
     
Reynsla   Lítt reynd, er í uppeldi árið 2005
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Hringadrottning
Hringadrottning
Hringadrottning
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is