Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Eryngium agavefolium
Ættkvísl   Eryngium
     
Nafn   agavefolium
     
Höfundur   Griesb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Grænsveipþyrnir*
     
Ætt   Sveipjurtaætt (Apiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Grænblár.
     
Blómgunartími   Síðsumars.
     
Hæð   - 100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Hárlaus fjölæringur, allt að 100 sm hár. Blómstönglar uppréttir, greinóttir.
     
Lýsing   Grunnlauf 10-35 x 5-25 sm, aflöng-bandlaga, mjókka smám saman, æðar samhliða, jaðrar með grófa þyrna sem vita fram. Stöngullauf lykja næstum um stöngulinn, jaðrar með þyrnitennur. Blómkollar margir, allt að 5 sm, grænbláir, reifablöð 5-7 mm, ydd útstæð til aftursveigð, heilrend til þyrnitennt. Smáreifar 1-1,5 mm, lensulaga- langydd, heilrend. Bikartennur allt að 1 mm. Aldin 2 ? 2,5 mm, kúlulaga.
     
Heimkynni   Argentína
     
Jarðvegur   léttur, frjór, framræstur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H4
     
Heimildir   = 1, 2
     
Fjölgun   Skipting, sáning, með rótargræðlingum.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Hefur reynst fremur skammlíf í ræktun í Lystigarðinum og er í viðkvæmari kantinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is