Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Canadanthus modestus
Ættkvísl   Canadanthus
     
Nafn   modestus
     
Höfundur   Lindl.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Kanadastjarna*
     
Ætt   Asteraceae
     
Samheiti   Aster modestus Lindl.
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól (hálfsk)
     
Blómlitur   dökkpurpura/gulur hvirfill
     
Blómgunartími   síðsumars-haust
     
Hæð   -1m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölæringur alltað 1m sem vex upp frá löngum skriðulum jarðstöngli. Blómstönglar venjulega einir, oft kirtil- dúnhærðir, einkum ofantil.
     
Lýsing   Lauf allt að 13 x 4 sm lensulaga, heilrend eða sagtennt, legglaus og venjulega með axlablöð og lykja um stöngulinn, hárlausir til ögn snörp ofan, hárlaus til dúnhærð neðan, neðstu blöðin visna flótt. Körfur allmargar eða fjölmargar í stuttri blómskipun. Reifar 7-11 mm háar, reifablöð grönn, langydd eða mjókka, næstum eins, ekki aðlæg, oft með djúppurpura slikju, þunn. Tungublóm 1 ? 1,5 sm 20- 40, dökkpurpura. Aldin með greinilegum strengjum, ögn stinnhærð. Sumarblómstrandi.
     
Heimkynni   N - Ameríka
     
Jarðvegur   Vex í rökum jarðvegi
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1, USDA
     
Fjölgun   sáning, skipting
     
Notkun/nytjar   fjölær beð
     
Reynsla   Lítt reynd. Í uppeldi 2006.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is