Halldór Kiljan Laxness - Heimsljós

"Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæstir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yfir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörum."

Erigeron uniflorus
Ættkvísl   Erigeron
     
Nafn   uniflorus
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallakobbi
     
Ætt   Asteraceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   ljóslillablár/gulur hvirfill
     
Blómgunartími   júlí-sept.
     
Hæð   -0.15m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjallakobbi
Vaxtarlag   Fjölæringur sem verður allt að 15 sm, stönglar hærðir.
     
Lýsing   Grunnlauf allt að 5 × 0,1 sm, spaðalaga, snubbótt, lítið eitt dúnhærð. Í fyrstu, randhærð. Stöngullauf fá, minni og harla lítið randhærð. Karfa allt að 1,5 sm í þvermál, stök, neðri reifablöð dúnhærð, oddur lillalitur, stöku sinnum ögn baksveigður, tungublóm hvít til föl lilla. Blómgast í júlí-september.
     
Heimkynni   Norðurheimskautasvæðið. Pólhverf og í fjöllum Evrasíu
     
Jarðvegur   léttur, framræstur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z2
     
Heimildir   2
     
Fjölgun   skipting, sáning
     
Notkun   steinhæðir, ker, kassa
     
Nytjar   Mjög harðger en kannski ekki mjög auðræktuð á láglendi. Í íslenska beðinu og í uppeldi 2005 frá nokkrum stöðum.
     
Yrki og undirteg.   Erigeron uniflorus ssp. eriocephalus (Vald.) Cronq. Allt að 35 sm, grunnlauf öfuglensulaga stöku sinnum spaðalaga. Körfur allt að 3 sm í þvermál, neðri reifablöð rauðpurpura.
     
Útbreiðsla  
     
Fjallakobbi
Fjallakobbi
Fjallakobbi
Fjallakobbi
Fjallakobbi
Fjallakobbi
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is