Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Aster novi-belgii
Ættkvísl   Aster
     
Nafn   novi-belgii
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Strandstjarna
     
Ætt   Asteraceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   bláfjólublár, purpuralitur eða hvítur/gulur hvirfill
     
Blómgunartími   haust
     
Hæð   0,9-1.2m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Blómstönglar allt að 1,5 m, þarf að binda upp þegar líður á sumarið. Skríður aðeins með jarðstönglum. Ekki kirtilhærð. Körfur allt að 2,5 sm í þvermál (meira hjá sumum yrkjum),
     
Lýsing   Lauf allt að 11 x 2,2 sm, flest 4-10 sinnum lengri en breið, ekki bláleit, heilrend eða aðeins tennt, grunnur eyrður. Hvirfingarlaufin stilkuð, öfuglensulaga hin stilklaus, bandlaga eða aflönglensulaga, greypfætt. Körfur 2,5 í þvermál (yrki með stærri blóm, - 5 sm. Fjölmörg geld stoðblöð í skúf, sem er með nokkur egglaga til band lensulaga stoðblöð sem fara smá saman minnkandi. Reifar 5 -8 mm háar, bollalaga, ytri reifablöðin græn, ekki aðlæg, oft jafn löng og þau innri og líkjast geldu stoðblöðunum, stundum styttri en þau innri, sem eru ekki aðlæg eða aðlæg, lensulag og með grænt miðrif og öfuglensulaga grænt svæði við endann. Tungur 30-50 7-10 x u.þ.b. 2 mm (miklu stærri á yrkjum ) og bláfjólublá, purpuralit eða hvít. Hvirfilkrónur 5-6 mm, flipar um 1/4 af lengd naglarinnar. Svifkrans 6-7 mm. Blómgast í sept.- okt.
     
Heimkynni   A N Ameríka
     
Jarðvegur   frjór, rakur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   2
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   skipting að vori, sáning
     
Notkun/nytjar   fjölær beð
     
Reynsla   Mörg bráðfalleg og harðger yrki og flest Þeirra mun lægri en aðaltegundin eða á bilinu 15-50cm (krossar með A. dumosus t.d). Af þeim hefur 'Winston Churchill' reynst langbest í garðinum enn sem komið er en auðvitað á eftir að prófa flest þeirra
     
Yrki og undirteg.   Óteljandi yrki hafa verið framleidd með víxlfrjógun milli tegundanna. A. dumosus er foreldri litlu afbrigðanna með mörg geld stoðblöð og breyttar reifar. A. lanceolatus getur verið valdur að því að laufgrunnur og reifar passa ekki alveg við lýsinguna hér að ofan. Nafnið A. x salignus Will de Now nær yfir þessa blendinga og er hentust til að nota á "afgangsplöntur" en garðayrki sem eru einhvers virði eru venjulega talin upp undir A. x versicolor 'Winston S Churchill' 70 sm há planta blóm glóandi rúbínrauð 'Rosalinde' (heimild EGF) 'Winston Churchill' hefur þrifist vel í LA og þar utan fjölmörg yrki í ræktun USA t.d. 'Snow Cushion' hvítt og 'Audrey' blátt - allt að 400 yrki í ræktun í USA og Evr. og aðeins hluti þeirra nefndur í RHS og EGF.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is