Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Abies concolor
Ættkvísl   Abies
     
Nafn   concolor
     
Höfundur   (Gordon & Glend.) Lindl. ex Hildebr.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hvítþinur
     
Ætt   Þallarætt (Pinaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Tré, sígrænt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi / skjól
     
Blómlitur   ♂ blóm gulgræn,♀ blóm gulgræn
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   10-20 m (-40 m)
     
Vaxtarhraði  
     
 
Hvítþinur
Vaxtarlag   Þétt, mjókeilulaga króna, greinar standa lárétt út frá stofni, börkur lengi sléttur með áberandi kvoðubólum, seinna ljósgrár, langsprunginn.
     
Lýsing   Tré 25-40 m hátt í heimkynnum sínum, með greinar alveg niður að jörð. Greinar geislastæðar og láréttar, börkur ljósgrár, hrjúfur. Ársprotar grágrænir til ólífugrænar, því sem næst hárlausir, brum kúlulaga, kvoðug. Barrnálum er óreglulega raðað á greinarnar. Þær eru yfirleitt sigðlaga og uppsveigðar; í miðröðinni beinast þær upp og fram á við, eru bandlaga, 40-60 mm langar og 2-2,5 mm breiðar, yddar til bogadregnar, ± bláleitar bæði ofan og neðan. Í þverskurð eru þær dálítið kúptar til næstum flatar. Þær eru með 2 ljósar loftaugarendur að neðan. Könglar eru sívalir, mjórri til endanna, 7-12 sm langir. Ungir könglar eru grænleitir eða purpuralitir, verða seinna brúnir. Köngulhreistur eru blævængslaga, allt að 25 mm breið, hreisturblöð sjást ekki. Fræ öfugegglaga, vængur skakkur.
     
Heimkynni   SV-Bandaríkin til N-Mexikó.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, meðalþurr, lítið eitt súr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   1,2,7,9
     
Fjölgun   Sáning, forkæla fræ í ca. 1 mánuð, vetrargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Stakstæð, í þyrpingar, í beð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var 1987. Hún er falleg og þrífst vel, kelur ekkert og önnur planta sem sáð var 1990, kelur heldur ekkert.
     
Yrki og undirteg.   Abies concolor var. concolor er aðalgerð þessarar tegundar. Krónan er þéttari en á öðrum afbrigðum. Ársprotarnir eru gulir eða gulgrænir, brumin kúlulaga. Barr er kambskipt, oft sigðlaga. Könglar eru ljósgænir ungir eða þá purpura mjölvaðir. Abies concolor var. lowiana - Síerraþinur frá Origon og Sierra er grennri og hærri með mattgrænar, tvíhliðstæðar nálar.
     
Útbreiðsla  
     
Hvítþinur
Hvítþinur
Hvítþinur
Hvítþinur
Hvítþinur
Hvítþinur
Hvítþinur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is