Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Doronicum clusii
Ættkvísl   Doronicum
     
Nafn   clusii
     
Höfundur   (All.) Tausch.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Kiðafífill
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Júlí-september.
     
Hæð   5-35 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Kiðafífill
Vaxtarlag   Stönglar allt að 35 sm háir.
     
Lýsing   Laufin þunn, langhrokkinhærð, ekki með kirtla á laufjöðrunum, grunnlauf allt að 4,5x2sm, aflöng til egglaga-oddbaugótt, mjókka að laufleggnum, leggurinn 2-5 sm, jaðrar heilrendir til bylgju-tenntir, stöngullauf oddbaugótt til lensulaga, leggstutt eða greipfætt. Körfur stakar allt að 7,5 sm í þvermál, reifablöð allt að 14 mm, hálf lengd geislablómanna, langhrokkinhærð. Svifhárakrans heill.
     
Heimkynni   A Alpafjöll, Karpatafjöll, Pýreneafjöll.
     
Jarðvegur   Grýttur, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Harðgerð eða meðalharðgerð, lítt reynd hérlendis. Var sáð í Lystigarðinum 1998.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Kiðafífill
Kiðafífill
Kiðafífill
Kiðafífill
Kiðafífill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is