Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Galanthus plicatus
Ættkvísl   Galanthus
     
Nafn   plicatus
     
Höfundur   Bieb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Kósakkagosi
     
Ætt   Páskaliljuætt (Amaryllidaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Laukur, fjölær.
     
Kjörlendi   Sól, (hálfskuggi).
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Apríl-maí.
     
Hæð   15-20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Laukur hnöttóttur eða egglaga, 2,5 sm eða stærri. Laufin breið, breiðust um miðju, 10 x 1 sm þegar blómin koma, allt að 30-2 sm seinna, mattgræn, bláleit um miðja blöðkuna. Jaðrar uppundnir í brumlegunni, halda áfram að vera þannig, ögn bylgjuð ofantil.
     
Lýsing   Blómstöngull allt að 20 sm, blóm misstór, ytri blómhlífarblöð aflöng, allt að 2,5 sm, innri blómhlífarblöð með grænan blett aðeins efst. Eggleg hálfhnöttótt, grænt, 5 mm í þvermál.
     
Heimkynni   A Evrópa.
     
Jarðvegur   Frjór, léttur, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, hliðarlaukar, lagðir í september á 6-8 sm dýpi.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, sem undirgróður, í blómaengi.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru ekki til neinar plöntur 2015, en hefur verið sáð. Í meðallagi harðgerð planta.
     
Yrki og undirteg.   'Warham' er með eplagrænt lauf.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is