Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Aciphylla aurea
Ættkvísl   Aciphylla
     
Nafn   aurea
     
Höfundur   W. R. B. Oliver
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Trefjahyrna (sverðblað)
     
Ætt   Apiaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   gullgulur
     
Blómgunartími   Júlí
     
Hæð   0.5-0.8 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Trefjahyrna (sverðblað)
Vaxtarlag   Myndar formfasta hvirfingu, stingandi laufblaða, blaðhvirfingar þéttar og geta orðið allt að 80 sm í þvermál. Blómstönglar allt að 80 sm á hæð.
     
Lýsing   Lauf ein- til tvífjaðurskipt, 70-90 sm á lengd, minna á blævæng, gulgræn, sígræn, hvassydd. Slíður þykk, jaðrar himnukenndir. Smálauf í 2-4 pörum, 20-30 sm × 8-10 mm, stinn og þyrnikennd með fínar tennur sem vita fram. Laufleggir 10-20 sm × 12-16 mm, snarpir eða smátenntir. Axlablöð minna á laufin, eru jafnlöng þeim, allt að 27 sm × 8 mm, mjó hvassydd. Blómin gullgul í breiðu keilulaga, alllöngu axi. Bæði karlöx og kvenöx koma fram hjá sömu plöntunni. Karlöxin gisnari. Blómin eru fremur óásjáleg, örlítil í smáum, samsettum sveipum, einkynja. Blómgast um miðjan júlí.
     
Heimkynni   Nýja Sjáland
     
Jarðvegur   léttur, framræstur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1,2
     
Fjölgun   skipting, sáning
     
Notkun   skrautblómabeð, steinhæðir
     
Nytjar   Dafnaði ágætlega í Lystigarði Akureyrar, sérkennileg tegund - ekki til sem stendur í garðinum. Þarf extra góða framræslu og gott er að setja möl eða smásteina allt í kring um rótarhálsinn svo hann rotni ekki.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Trefjahyrna (sverðblað)
Trefjahyrna (sverðblað)
Trefjahyrna (sverðblað)
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is