Málsháttur Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
|
Ættkvísl |
|
Aster |
|
|
|
Nafn |
|
umbellatus |
|
|
|
Höfundur |
|
Mill. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Silfurstjarna |
|
|
|
Ætt |
|
Asteraceae |
|
|
|
Samheiti |
|
Doellingeria umbellatus (Mill.) Nees |
|
|
|
Lífsform |
|
fjölær |
|
|
|
Kjörlendi |
|
sól |
|
|
|
Blómlitur |
|
hvítur/gulur hvirfill |
|
|
|
Blómgunartími |
|
að hausti |
|
|
|
Hæð |
|
1-1,5m (-2m) |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Blómstöngull allt að 1,5 m (2m), oftast einn. Skríður með neðanjarðarstönglum, trefjarót. |
|
|
|
Lýsing |
|
Lauf 10-16 x 2-2,5 sm, oddbaugótt til oddbaugótt-egglaga, heilrend, dökkgræn til brún græn á efra borði, miklu ljósari á því neðra og með fíngerða, jafna netæðastrengi, stuttir blaðstilkar eða nær ásætin, hrjúf af stuttum gaddaþyrnum á efra borði, hárlaus eða örlítið dúnhærð á því neðra. Stöngullauf egg - lensulaga, mjókka að grunni í stutta vængjaða leggi.
Blómin fremur lítil eða aðeins um 2-3 sm í þvermál, fjölmargar körfur í flötum, fremur gisnum skúf. Körfur endastæðar á 4-20 sm löngum greinum með bandlaga stoðblöð og opnast hver á fætur annarri. Reifar 3-5 mm háar, öfug keilulaga, reifablöð fá, mismunandi, aðlæg, band- lensulaga, ytri græn innri með himnukenndan jaðar. Tungur 4-15, 5-6 x ca. 2 mm, hvítar. Hvirfilkrónur u.þ.b. 3 mm gulgrænar miklu styttri en frjóhnapparnir og stílarnir, með flipa sem eru hálf lengd naglarinnar. Svifkrans u.þ.b. 5,5 mm. Aldin u.þ.b. 2,5 mm ekki alveg umlukin reifablöðunum. Blómgast að hausti. |
|
|
|
Heimkynni |
|
A & M N Ameríka |
|
|
|
Jarðvegur |
|
léttur, frjór, rakur, rakaheldinn |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
3 |
|
|
|
Heimildir |
|
1,2 |
|
|
|
Fjölgun |
|
skipting að vori, sáning |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
fjölær beð, vex best í rökum jarðvegi. |
|
|
|
Reynsla |
|
Hefur vaxið í garðinum samfellt frá 1984 í K1-N10 og þrífst bara vel. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|