Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Barbarea vulgaris
Ættkvísl   Barbarea
     
Nafn   vulgaris
     
Höfundur   R. Br.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Garðableikja
     
Ætt   Krossblómaættt (Brassicaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær eða tvíær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   50-80 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Garðableikja
Vaxtarlag   blöð í Þéttri hvirfingu, blöðóttir beinvaxnir sterkir stönglar
     
Lýsing   blómin lítil í stórum klösum blöðin gljáandi fjaðurskipt með stór nær kringlótt endablað og 2-4 pör af litlum hliðarblöðum
     
Heimkynni   Evrópa, Asía.
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór, meðalrakur-rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð, sem undirgróður.
     
Reynsla   Mjög harðgerð, sáir sér.
     
Yrki og undirteg.   'Plena' er með ljósgul, ofkrýnd blóm og 'Variegata' með falleg dökkgræn og gulhvítflekkótt blöð.
     
Útbreiðsla  
     
Garðableikja
Garðableikja
Garðableikja
Garðableikja
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is