Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Holcus lanatus
Ættkvísl   Holcus
     
Nafn   lanatus
     
Höfundur   Linnaeus, Sp. Pl. 2: 1048. 1753.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Loðgresi
     
Ætt   Poaceae (Grasaætt)
     
Samheiti   Avena lanata (L.) Hoffm.; Holcus lanatus var. soboliferus Duwensee; Notholcus lanatus (Linnaeus) Nash ex Hitchcock.; Ginannia lanata (L.) F.T.Hubb.; Ginannia pubescens Bubani;
     
Lífsform   Fjölær grastegund (einkímblöðungur)
     
Kjörlendi   Vex í valllendi, graslendi, brekkum, mólendi og skurðbökkum.
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími   Júní-júlí
     
Hæð   0.30 - 0.60 m
     
 
Loðgresi
Vaxtarlag   Stráin grófgerð í litlum þúfum, 30-60 sm á hæð. Öll jurtin þétthærð fremur mjúkum gráum hárum.
     
Lýsing   Blöðin ljósgrágræn, 4-8 mm á breidd. Slíðurhimnan stutt, 1-1,5 mm á lengd. Punturinn oftast bleikfjólublár, þéttur, egglaga, mjúkur og dökkur með tvíblóma smáöxum 6-15 sm á lengd. Tvíkynja blóm neðar en einkynja karlblóm ofar. Axagnir loðnar, 4-5 mm á lengd, ytri axögnin eintauga, en sú innri með þrem upphleyptum taugum og stuttum týtubroddi í endann. Blómagnirnar grænar, gljáandi, hárlausar með löngum hárum við grunn. Ytri blómögn efra blómsins með boginni eða snúinni týtu, sem nær ekki út úr axinu. Blómgast í júní-júlí. LÍK/LÍKAR: Engar, þekkist á áberandi hæringu, aðeins lógresi er eins áberandi loðið.
     
Jarðvegur  
     
Heimildir   1,2,3,9, HKr, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=2&taxon_id=200025530
     
Reynsla   Punturinn ágætur í þurrblómaskreytingar.
     
     
Útbreiðsla   Algengt á nokkru svæði austan Markarfljóts, undir Eyjafjöllum og í Mýrdal. Annars staðar aðeins sem sjaldgæfur slæðingur. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Evrópa (víða ílend og skráð sem ágent illgresi í tepraða beltinu).
     
Loðgresi
Loðgresi
Loðgresi
Loðgresi
Loðgresi
Loðgresi
Loðgresi
Loðgresi
Loðgresi
Loðgresi
Loðgresi
Loðgresi
Loðgresi
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is