Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Juncus articulatus
Ættkvísl   Juncus
     
Nafn   articulatus
     
Höfundur   Linnaeus, Sp. Pl. 1: 327. 1753.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Laugasef
     
Ætt   Juncaceae (Sefætt)
     
Samheiti   Juncus articulatus var. obtusatus Engelmann; J. articulatus var. stolonifer (Wohlleben) House; J. lampocarpus Ehrhart ex Hoffmann
     
Lífsform   Fjölær (einkímblöðungur)
     
Kjörlendi   Vex í blautum flögum, við laugar, vatnsfarvegi og í leðju í gömlum skurðum.
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími   Júlí
     
Hæð   0.10 - 0.40 m
     
 
Laugasef
Vaxtarlag   Jarðstönglar stuttir og skriðulir. Stráin gróf, oftast uppsveigð, með tveim til fimm blöðum, sem eru gróf með greinilegum hnútum og hliðflöt, 10-40 sm á hæð.
     
Lýsing   Blöðin sívöl, 1-2,5 mm á breidd, hol innan með þverveggjum. Neðstu blaðslíðrin yfirleitt áberandi rauð. Blómin eru nokkur saman í allmörgum (3-10) blómhnoðum, á nokkuð útstæðum, mislöngum leggjum. Blómhlífin 6-blaða, blómhlífarblöðin oddhvöss, græn í fyrstu, en verða rauðbrún, ydd, 3-4 mm á lengd. Fræflar 6, frævan með 3 frænum. Hýðið dökkbrúnt og gljáandi, oddmjótt. Blómgast í júlí. 2n = 80. LÍK/LÍKAR: Mýrasef. Laugasef auðgreind á útstæðari blómhnoðum, gildari blöðum og stönglum, og rauðari blaðslíðrum.
     
Jarðvegur  
     
Heimildir   1,2,3,9, HKr, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=1&taxon_id=222000096
     
Reynsla  
     
     
Útbreiðsla   Allalgengt um land allt, sjaldgæft á austurlandi og á miðhálendinu (þar við heitar laugar). Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: N Ameríka, Evrópa, Asía.
     
Laugasef
Laugasef
Laugasef
Laugasef
Laugasef
Laugasef
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is