Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Berberis francisci-ferdinandi
Ættkvísl   Berberis
     
Nafn   francisci-ferdinandi
     
Höfundur   Schneid.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Sveigbroddur
     
Ætt   Mítursætt (Berberidaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Fölgulur.
     
Blómgunartími   Síðla vors.
     
Hæð   -2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Sveigbroddur
Vaxtarlag   Þyrnóttur runni með fallega bogsveigðar greinar, ungar greinar kantaðar en verða síðar meira sívalar, rauðleitar.
     
Lýsing   Allt að 2 m á hæð. Ársprotar purpuralitir, kantaðir, verða síðar ryðbrúnir og sívalir. Þyrnar 3 saman, greyptir, allt að 4 sm langir. Lauf allt að 7×3 sm, egglaga-oddbaugótt, ydd, sagtennt, með allt að 25 tennur á hvorri hlið, sjaldan heilrend, glansandi á efra borði, ljósari á því neðra. Blómin fölgul, 8 mm breið, allt að 30 í mjóum hangandi allt að 12 sm löngum hálfsveip. Eggleg 2. Aldin allt að 12 mm, egglaga-sporvala, skarlatsrauð, glansandi, stíll lítill.
     
Heimkynni   V Kína.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, léttur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Haustsáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Stakstæðir, í raðir, í skrautrunna beð og víðar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1991 og gróðursett í beð 1994, hefur kalið allnokkuð árlega öll árin.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Sveigbroddur
Sveigbroddur
Sveigbroddur
Sveigbroddur
Sveigbroddur
Sveigbroddur
Sveigbroddur
Sveigbroddur
Sveigbroddur
Sveigbroddur
Sveigbroddur
Sveigbroddur
Sveigbroddur
Sveigbroddur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is