Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Montia fontana
Ættkvísl   Montia
     
Nafn   fontana
     
Höfundur   Linnaeus, Sp. Pl. 87 (1753)
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Lækjagrýta
     
Ætt   Portulacaceae (Grýtuætt)
     
Samheiti   Montia lamprosperma Cham. Montia rivularis C.C.Gmel. Montia fontana subsp. variabilis Walters
     
Lífsform   Einær - fjölær (skammlíf) jurt
     
Kjörlendi   Vex við lindir og dý eða meðfram lækjum sem seytla frá þeim.
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Júní-júlí
     
Hæð   0.02-0.10 m
     
 
Lækjagrýta
Vaxtarlag   Smágerð, safarík, ljósgræn jurt. Stönglar marggreindir, skástæðir eða útafliggjandi, 2-10 sm á hæð, en getur orðið töluvert lengri, liggur þá oftast útaf. Skýtur rótum á stöngulliðamótum og myndar þéttar breiður.
     
Lýsing   Blöðin gagnstæð, fagurgræn, þykk og safamikil, öfugegglaga, lensulaga eða oddbaugótt, heilrend um 4-8 mm á lengd. Blómin þrídeild, örsmá í blómfáum skúfum úr blaðöxlum. Blómhlífin fremur óregluleg og er lokuð nema í sólskini. Krónublöðin hvít, oftast þrjú (stundum fjögur eða fimm) 1-2 mm á lengd. Bikarblöðin tvö, græn, 1-1,5 mm í þvermál, kringlótt. Fræflar þrír og ein fræva með þremur frænum. Blómleggir bogna niður á við að lokinni blómgun. Aldinið er hýði sem klofnar í þrennt við þroska og myndar þrjú, hrafnsvört og gljáandi fræ. Blómgast í júní-júlí. 2n=20. LÍK/LÍKAR: Engar. Auðþekkt á smáum, þrídeildum blómum.
     
Jarðvegur  
     
Heimildir   1,2,3,9, HKr
     
Reynsla  
     
     
Útbreiðsla   Algeng um land allt fyrir utan hin þurru svæð miðhálendisins, aðallega við læki og lindir. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Argentína, Ástralía, Evrópa, Kanada, Chiile, Kólumbía, Ekuado, Grænland, Indland, Balí, Maí, Mexíkó, Marokkó, Nýja Gínea, Perú, N Ameríka ov.
     
Lækjagrýta
Lækjagrýta
Lækjagrýta
Lækjagrýta
Lækjagrýta
Lækjagrýta
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is