Halldór Kiljan Laxness - Heimsljós

"Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæstir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yfir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörum."

Saxifraga cotyledon
Ættkvísl   Saxifraga
     
Nafn   cotyledon
     
Höfundur   Linnaeus, Sp. Pl. 398 (1753)
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
     
Ætt   Saxifragaceae (Steinbrjótsætt)
     
Samheiti   Saxifraga montavoniensis A. Kerner
     
Lífsform   Fjölær jurt
     
Kjörlendi   Vex í sprungum, klettum og björgum.
     
Blómlitur   Hvítur - rauðar dröfnur
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst
     
Hæð   0.10-0.40 m
     
 
Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
Vaxtarlag   Sígræn, fjölær jurt, 10-40 sm á hæð. Stönglar uppréttir til skástæðir (jafnvel hangandi í klettum), marggreinóttir og fjölblöðóttir, kirtilhærðir og meira eða minna rauðleitir.
     
Lýsing   Grunnblöðin, þykk í þéttum, reglulegum hvirfingum við grunn, öfugegglaga eða tungulaga, um 10-15 mm á breidd, smátennt með hvítar kalkútfellingar í tönnunum. Stöngulblöðin kirtilhærð, spaðalaga eða aflöng en mjókka og minnka eftir því sem ofar dregur. Margir langir og þéttir, keilulaga blómklasar, oftast einn úr hverri blaðöxl. Blómklasar myndaðir úr fjölmörgum skúfum sem eru lengstir neðst á klasanum en styttri eftir því sem ofar dregur. Blómin hvít, oftast með gulleitum eða rauðleitum, gegnsæjum æðum, 1,2-1,8 sm í þvermál. Krónublöðin spaðalaga, randhærð neðan til. Bikarblöðin, með stuttum, rauðum kirtilhárum, 4-5 mm á lengd. Bikarblöðin meira en helmingi styttri en krónublöðin. Bikarflipar lensulaga, rauðleitir. Fræflar 10, frævan klofin í oddinn með tveim útstæðum stílum. Aldin hýði með mörgum fræjum. Blómgast í júlí-ágúst. "Skömmu eftir blómgun beygja fræflarnir sig hver af öðrum inn yfir óþroskaða frævuna og losa frjókorn úr hnöppum sínum yfir smáar flugur, sem sækja í sykrur blómsins, en rétta sig upp aftur að því loknu. Um það bil viku seinna er frævan fullvaxin og þegar frjóvgun er lokið beygja allir fræflarnir sig í einu inn yfir frævuna og vernda hana gegn frekari heimsóknum flugna." (Ág.H.) LÍK/LÍKAR: Bergsteinbrjótur (Saxifraga paniculata) hefur svipaðar en minni blaðhvirfingar en miklu færri og smærri blómklasa.
     
Jarðvegur  
     
Heimildir   1,2,3,9, HKr
     
Reynsla   "Einkar fögur jurt, kölluð þúsunddyggðajurt í Skaftafellssýslu". (Ág.H.)
     
     
Útbreiðsla   Algeng eða víða á sunnanverðu Austurlandi frá Loðmundarfirði suður í Skaftártungu. Ófundin annars staðar. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Austurríki, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Noregur, Spánn, Svíþjóð, N Ameríka.
     
Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
Klettafrú (Þúsundyggðajurt)
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is