Halldór Laxness

"Blóm eru ódauðleg... þú klippir þau í haust og þau vaxa aftur í vor, - einhversstaðar."

Malus baccata v. mandschurica
Ættkvísl   Malus
     
Nafn   baccata
     
Höfundur   (L.) Borkh.
     
Ssp./var   v. mandschurica
     
Höfundur undirteg.   (Maxim.) Schneid.
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Austraepli
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Malus sachalinensis (Kom.) Juz.
     
Lífsform   Lauffellandi tré eða runni.
     
Kjörlendi   Sól (getur vaxið í dálitlum skugga).
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   - 5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Austraepli
Vaxtarlag   Uppréttur runni eða lítið tré.
     
Lýsing   Lauf breið-oddbaugótt, jaðrar fín-sagtenntir, tennur fáar. Laufleggir og neðra borð laufa dúnhærð í fyrstu. Blóm allt að 4 sm breið, hvít, ilmandi. Bikar og blómleggur dúnhærð í fyrstu. Aldin 12 mm, sporvala, skærrauð.
     
Heimkynni   N Japan, M Kína.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór-frjór, sandblandaður, rakur, vel framræstur,.
     
Sjúkdómar   Mikil mótstaða gegn sjúkdómum.
     
Harka   Z2
     
Heimildir   1, http://www.pfaf.org
     
Fjölgun   Sáning. ---- Fræi er best að sá að haustinu um leið og það er þroskað, geymið sáninguna í sólreit, það spírar oftast síðvetrar. Fræ sem hefur verið geymt þarf það að fá kuldameðferð í rökum mosa eða sandi í 3 mánuði við um 1°C og það ætti að sá því í sólreit strax við fáum fræðið í hendur. Það er óvíst að það spíri fyrr en eftir 12 mánuði eða meir. Dreifplantið hverri kímplöntu í sér pott strax og þær eru orðnar nógu stórar til að handfjatla. Plönturnar eru hafðar í pottum í sólreit þangað til síðla vors næsta ár, gróðursettar í beð þegar þær eru orðnar nógu stórar, skýlt fyrstu árin.
     
Notkun/nytjar   Stök tré eða runnar, í þyrpingar, raðir, blönduð limgerði. -------- Tegundin er ræktuð vegna ætra epla sinna í Kína og það eru allmörg yrki hafa fengið nafn.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni sem sáð var til 1983 og gróðursettar í beð 1988 hafa kalið ögn af og til gegnum árin, og blómstrað síðustu 4-5 árin. Ein planta sem sáð var til 1980 og gróðursett í beð 1988, kelur talsvert, engin blóm. Ein planta sem sáð var til 1982 og gróðursett í beð 1991, kelur lítið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Austraepli
Austraepli
Austraepli
Austraepli
Austraepli
Austraepli
Austraepli
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is