Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Cacalia alliariae
Ættkvísl   Cacalia
     
Nafn   alliariae
     
Höfundur   Gouan.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallasveipur
     
Ætt   Asteraceae
     
Samheiti   Adenostyles alliariae
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól (hálfskuggi)
     
Blómlitur   rauðfjólublár
     
Blómgunartími   júlí mestallur
     
Hæð   1-1.9m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjallasveipur
Vaxtarlag   stórvaxin, geysistór stilkuð blöð mynda mikinn blaðbrúsk
     
Lýsing   blóm lítil, öll pípukrýnd 3-6 saman í mjórri sívalri körfu, blómstönglar greinast eftst og körfur mynda sveiplaga breiða sk. blöðin allt að 50cm í Þm, langstilkuð, þríhyrnd-hjartalaga til nýrlaga, óreglulega gróftennt og gishærð á neðra borði
     
Heimkynni   Fjöll M Evrópu (1000-2700m)
     
Jarðvegur   djúpur, frjór, rakaheldinn
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   skipting, sáning (ætti að skipta sjaldan, nokkur ár að ná sér í fulla stærð eftir skiptingu sem og af fræi)
     
Notkun/nytjar   stakstæð, Þyrpingar baka til í beðum
     
Reynsla   Harðger, stórfalleg og geysisterk tegund, uppbinding óÞörf þar sem blómst. eru sterkir og sveigjanlegir
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fjallasveipur
Fjallasveipur
Fjallasveipur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is