Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Paeonia lactiflora 'Felix Crousse'
Ættkvísl   Paeonia
     
Nafn   lactiflora
     
Höfundur   Pall.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Felix Crousse'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Silkibóndarós
     
Ætt   Bóndarósarætt (Paeoniaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Djúphindberjarauður.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   Allt að 75 sm
     
Vaxtarhraði   Fremur hraðvaxta.
     
 
Silkibóndarós
Vaxtarlag   Fjölæringur 70-75 sm hár og álíka umfangsmikill.
     
Lýsing   Blómin (af “japanskri” gerð), stór, ofkrýnd, ilmandi, djúp hindberjarauð. Lauf dökkgræn, þykkt og glansandi.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Fremur rakur sendinn, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = http://www.estabrooksonline.com
     
Fjölgun   Skipting.
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð, í þyrpingar.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Silkibóndarós
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is