Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Caltha leptocepala
Ættkvísl   Caltha
     
Nafn   leptocepala
     
Höfundur   DC.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallahófsóley
     
Ætt   Ranunculaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   hvítur
     
Blómgunartími   maí-júní
     
Hæð   0.3m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjallahófsóley
Vaxtarlag   myndarlegir blaðbrúskar
     
Lýsing   blómin með 7-12 bikarblöð, yl. eitt eða tvö á hverjum stöngli blöðin nokkuð aflöng með hjartalaga grunni, tennt
     
Heimkynni   N Ameríka, Kanada
     
Jarðvegur   djúpur, frjór, rakur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   skipting að vori eða hausti
     
Notkun/nytjar   steinhæðir, beð, við tjarnir og læki
     
Reynsla   Harðger, hefur reynst vel á Akureyri.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fjallahófsóley
Fjallahófsóley
Fjallahófsóley
Fjallahófsóley
Fjallahófsóley
Fjallahófsóley
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is