Halldór Laxness

"Blóm eru ódauðleg... þú klippir þau í haust og þau vaxa aftur í vor, - einhversstaðar."

Salix helvetica
Ættkvísl   Salix
     
Nafn   helvetica
     
Höfundur   Vill.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Héluvíðir
     
Ætt   Víðiætt (Salicaceae).
     
Samheiti   Salix arenaria Willd.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól til hálfskuggi.
     
Blómlitur   Svartur, rjómalitur
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   Allt að 60 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Héluvíðir
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, allt að 60 sm hár og 70 sm breiður. Líkur lappavíði (S. lapponum) nema hvað laufin á héluvíði eru 1-2 sm styttri, ekki í þyrpingu efst á stofninum/greininni.
     
Lýsing   Laufin eru breiðust ofan við miðju, verða hárlaus og glansandi ofan, nema við aðalæðastrenginn. Reklar ekki þéttir þegar þeir eru komnir með aldin.&
     
Heimkynni   Alpafjöll.
     
Jarðvegur   Sendinn og leirkenndur jarðvegur, meðalrakur til rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z6
     
Heimildir   = 1, www.backyardgardener.om/plantname/pda-ddbd.html,
     
Fjölgun   Sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í þyrpingar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta frá 1983, kelur ögn flest ár, annars falleg planta. Myndirnar eru teknar í grasagarðinum í Stokkhólmi.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Héluvíðir
Héluvíðir
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is