Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Shepherdia canadensis
Ættkvísl   Shepherdia
     
Nafn   canadensis
     
Höfundur   (L.) Nutt.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Klettasmalaber
     
Ætt   Silfurblaðsætt (Elaeagnaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Rjómagulur.
     
Blómgunartími   Vor.
     
Hæð  
     
Vaxtarhraði  
     
 
Klettasmalaber
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, allt að 2,5 m hár með útstæðar greinar. Ársprotar glansandi rauð brún, þétt þakin skjaldlaga hreistri (hreistrin tennt), þyrnalaus.
     
Lýsing   Lauf 4-6 x 1,5-3 sm, dökk gulgræn ofan með hvít hár á strjálingi, neðra borð laufa með hvítt dúnhár í brúskum og brún hreistur á strjálingi. Blómin allt að 4 mm í þverál, rjómagul, fræflar hnöttóttir. Aldin allt að 5 mm, gul til rauð.
     
Heimkynni   N Ameríka.
     
Jarðvegur   Sendinn, djúpur, frjór, rakur, þolir illa framræstan jarðveg.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, vetrargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð runnabeð.
     
Reynsla   Þrífst vel í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Klettasmalaber
Klettasmalaber
Klettasmalaber
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is