Páll Ólafsson, Ljóðið Vetrarkveðja
Margt er gott að muna þér
þó mér þú fyndist langur.
Farðu vel, þú færðir mér
fögnuð bæði og angur.

Þó að nísti frostið fast
og fölni grænir hagar
eftir þetta kuldakast
koma betri dagar.
Campanula collina
Ættkvísl   Campanula
     
Nafn   collina
     
Höfundur   Bieb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hólaklukka
     
Ætt   Campanulaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól, hálfskuggi
     
Blómlitur   fjólublár
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst
     
Hæð   0.15-0.3m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Hólaklukka
Vaxtarlag   Uppréttur fjölæringur með jarðrenglur, breiðist hægt út. All skriðulir jarðstönglar. Myndar hvirfingar stilkaðra blaða. Blómstönglar allt að 30 sm háir, dúnhærðir.
     
Lýsing   Stofnstæðu laufin breiðlensulaga til egglaga-aflöng, langydd, bogtennt, legglöng, dúnhærð. Blaðstilkar stöngullaufa styttast eftir því sem ofar dregur á stönglinum, laufin alveg stilklaus efst. Blómklukkur lútandi, einstakar eða fáar saman í fínlegum, einhliða klasa eða knippi. Aukabikarflipar smáir eða engir. Krónan breiðbjöllulaga, klofin næstum niður til hálfs, dökk silkipurpura til bláfjólublá. Stíll stendur nær ekkert út úr blóminu. Hýði opnast með götum neðst.
     
Heimkynni   Kákasus-Armenía
     
Jarðvegur   léttur, framræstur, frjór
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1,2
     
Fjölgun   skipting,
     
Notkun/nytjar   steinhæðir, kanta, beð, breiður, hleðslur, undirgróður
     
Reynsla   Harðger og bráðfalleg tegund og ekki til vandræða þótt hún sé dálítið skriðul. Þrífst vel. Hefur verið lengi í ræktun í görðum hér á landi og í Lystigarðinum eru plöntur sem lifað hafa í a.m.k. 50 ár. Þroskar fræ nokkuð reglulega.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Hólaklukka
Hólaklukka
Hólaklukka
Hólaklukka
Hólaklukka
Hólaklukka
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is