Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Campanula pulla
Ættkvísl   Campanula
     
Nafn   pulla
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Alpaklukka
     
Ætt   Campanulaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi
     
Blómlitur   Dökkfjólublár
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst
     
Hæð   0.05-0.2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Alpaklukka
Vaxtarlag   Smágerð með talsvert skriðula jarðstöngla, breiðumyndandi, þýfður fjölæringur með granna, greinótta jarðstöngla. Blómstönglar kantaðir, allt að 20 sm, uppsveigðir eða uppréttir, hærðir eða hárlausir á hornunum.
     
Lýsing   Stofnstæðu laufin mynda blaðhvirfingu. Þau eru egglaga til bog-spaðalaga, bogtennt til ógreinilega sljótennt, mjókka neðst, stilkstutt, gljáandi og visna fljótt. Stöngullauf eru bogadregin, ógreinilega tennt og stilklaus. Blómin drúpa, eru stök, endastæð og stilkuð. Knúbbar eru hangandi. Bikarflipar eru mjóþríhyrndir. Enginn aukabikar. Króna allt að 2,8 sm, trekt- til bjöllulaga, dökkblápurpura. Hýði keilulaga, drúpandi, opnast með götum neðst.
     
Heimkynni   A Evrópa, Alpafjöll
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, frjór
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1,2
     
Fjölgun   Skipting, sáning
     
Notkun/nytjar   Steinhæðir, kanta, beð, breiður, undirgróður
     
Reynsla   Harðger og verður þakinn blómum yfir blómgunartímann, þrífst vel bæði sunnanlands og norðan og myndar miklar breiður. Hefur verið allmörg ár í görðum á Akureyri og í Lystigarðinum. Kalklaus jarðvegur er bestur. Þroskar fræ reglulega.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Alpaklukka
Alpaklukka
Alpaklukka
Alpaklukka
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is