Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Delphinium oxysepalum
Ættkvísl   Delphinium
     
Nafn   oxysepalum
     
Höfundur   Borbás & Pax.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Tataraspori
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Djúpblár til fjólublár.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   10-50 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Tataraspori
Vaxtarlag   Fjölær jurt, stönglar hálf hárlausir neðantil, dúnhærðir ofantil, 10-50 sm háir.
     
Lýsing   Lauf með 3-5 flipa, fliparnir gróftenntir. Blómin mörg í klasa, djúpblá til fjólublá, bikarblöð allt að 3 sm, sporinn krókboginn, randhærður, allt að 1,5 sm. Fræhýði hárlaus, stöku sinnum dúnhærð.
     
Heimkynni   Karpatafjöll.
     
Jarðvegur   Góður, frjór garðajarðvegur, hæfilega rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beð með fjölærum plöntum.
     
Reynsla   Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Tataraspori
Tataraspori
Tataraspori
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is